22.10.10 - 12:45
Magnús Már Einarsson
Heimir Hallgrímsson búinn að semja við ÍBV (Staðfest)

Mynd: Eyjar.net

Mynd: Eyjar.net
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, hefur gert nýjan eins árs samning við félagið.
Fyrri samningur Heimis rann út eftir tímabilið en hann hefur ákveðið að halda áfram með Eyjamenn.
Heimir tók við ÍBV síðla sumars 2006 og sumarið 2008 náði hann að koma liðinu aftur upp í efstu deild.
Á nýliðnu tímabili gerði Heimir síðan flotta hluti með ÍBV en liðið endaði í þriða sæti í Pepsi-deildinni og var í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn fram í lokaumferðina.
Nú eru þjálfaramál allra félaga í Pepsi-deild karla klár en Heimir var eini þjálfarinn sem átti eftir að ganga frá sínum málum.

Heimild: Eyjar.net