22.10.11 - 15:27
Magnús Már Einarsson
Eyþór Helgi í ÍBV (Staðfest)

Mynd: Sigurjón Ragnar

Mynd: Sigurjón Ragnar
ÍBV hefur fengið framherjann Eyþór Helga Birgisson til liðs við sig frá HK. Hannskrifaði undir tveggja ára samning við Eyjamenn nú rétt í þessu.
Eyþór Helgi þekkir vel til hjá ÍBV því hann lék með liðinu í fyrra sem og síðari hluta sumars árið 2009.
Í fyrra skoraði hann tvö mörk í átjan leikjum þegar Eyjamenn enduðu í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar.
Þessi 22 ára gamli leikmaður spilaði með uppeldisfélagi sínu HK í fyrstu deildinni á nýliðnu tímabili.
Eyþór skoraði tíu mörk í 18 leikjum í fyrstu deildinni í sumar en það dugði ekki til að hjálpa HK að halda sæti sínu í deildinni.