22.11.11 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Magnús Karl til ÍR (Staðfest)

Jamie McCunnie og Magnús Karl við undirskrift.

Mynd: ÍR

ÍR hefur fengið markvörðinn Magnús Karl Pétursson til liðs við sig frá Stjörnunni. Magnús Karl mun verja mark ÍR í fyrstu deildinni næsta sumar og einnig sjá um markmannsþjálfun hjá félaginu.
Magnús skrifaði undir þriggja ára samning við ÍR-inga en við sama tækifæri skrifaði Jamie McCunnie einnig undir þriggja ára samning við félagið.
McCunnie kom til ÍR fra Grindavík á dögunum en hann mun verða spilandi aðstoðarþjálfari auk þess sem hann verður aðalþjálfari í nýrri afreksakademíu knattspyrnudeildar félagsins.
Magnús Karl, sem er 32 ára, byrjaði að æfa mark á nýjan leik í fyrra eftir fimm ára hlé en hjá ÍR mun hann fylla skarð Róberts Óskarssonar sem fór til FH á dögunum.
Í sumar stóð Magnús Karl í markinu hjá Stjörnunni í fyrstu fimm leikjum tímabilsins og stóð sig vel.
Magnús fékk tækifærið eftir að Ingvar Jónsson meiddist í vor en sá síðarnefndi tók aftur markvarðarstöðuna í sjöttu umferð og lék í markinu út sumarið.