22.11.11 - 19:23
Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Már Ragnarsson í KR (Staðfest)

Þorsteinn Már í leik með Ólafsvíkingum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

KR staðfesti rétt í þessu á vef sínum að framherjinn Þorsteinn Már Ragnarsson sé genginn til liðs við félagið frá Víkingi Ólafsvík en hann gerði samning við félagi út tímabilið 2015.
Þorsteinn Már sem er 22 ára gamall hafði verið fyrirliði Ólafsvíkinga í sumar en var lánaður til Raufoss í Noregi á lokadegi félagskiptagluggans 30. ágúst síðastliðinn.
Hann var ákveðinn í að skipta um lið nú í haust og reyna fyrir sér í Pepsi-deildinni og á endanum valdi hann á milli KR og Stjörnunnar. Nú hefur verið staðfest að hann valdi KR eins og Fótbolti.net greindi frá í gær.
Þorsteinn hefur mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur en hann hefur verið í lykilhlutverki hjá Víkingi Ólafsvík undanfarin ár. Hann byrjaði að leika með meistaraflokki félagsins 2007 og lék það sumar 15 leiki í 1. deild.
Hann á um 90 leiki að baki fyrir Ólafsvíkurliðið en í sumar spilaði hann 18 leiki í 1. deildinni og skoraði sex mörk.
Hann er annar leikmaðurinn sem KR fær til liðs við sig í vetur en áður hafði Haukur Heiðar Hauksson komið frá KA. KR hefur misst Gunnar Örn Jónsson sem fór í Stjörnuna.

Heimild: Vefur KR