Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 22. nóvember 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Alvarleg meiðsli geta gert menn sterkari
Friðrik Ellert Jónsson skokkar með Jóhanni Berg og Birki Bjarna.
Friðrik Ellert Jónsson skokkar með Jóhanni Berg og Birki Bjarna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Friðrik Ellert Jónsson, sjúkraþjálfari íslenska landsliðsins, var í viðtali á Stöð 2 í vikunni þar sem hann nefndi dæmi um íslenska íþróttamenn sem hafa komið sterkari til baka eftir erfið meiðsli eins og krossbandaslit.

„Ef við hugsum um okkar bestu leikmenn; Óla Stef, Eið Smára, Söru Björk, Jóa Berg. Hvað á þetta fólk allt sameiginlegt? Þetta eru allt eiginlega bestu íþróttamennirnir sem við höfum átt. Ég vil meina að alvarleg meiðsli, sem halda mönnum lengi frá, geti gert mann sterkari," sagði Friðrik Ellert í viðtalinu á Stöð 2.

Friðrik skrifaði meira um málið á Facebook og bendir á að ekkert sé mikilvægara en jákvæðar og uppbyggilegar hugsanir þegar reynir á andlegu hliðina í erfiðum meiðslum.

„Það er mikið áfall að lenda í alvarlegum meiðslum. Það sem skiptir mestu máli er hvernig við bregðumst við þeim aðstæðum sem við lendum í. Sumir koðna niður við mótlæti en aðrir rísa upp og koma til baka sem sterkari einstaklingar. Mótlætið getur hjálpað þeim að takast á við erfiðar aðstæður seinna meir. Það má segja að þeir breyti ósigrum sínum í sigra," segir Friðrik Ellert á Facebook.

„Fólk hættir að taka því sem sjálfsögðum hlut að geta iðkað íþróttina sína. Það finnur fyrir þakklæti fyrir að geta tekið þátt yfirhöfuð og nýtur þess jafnvel enn betur. Við slíkar aðstæður reynir mikið á andlegu hliðina og rétta hugarfarið."

„Það er ekkert mikilvægara en jákvæðar og uppbyggilegar hugsanir. Að sjá stöðugt alla góðu og jákvæðu hlutina fyrir sér. Þannig fer líkaminn að vinna í takt við hugann og tryggja að jákvæðnin og bjartsýnin skili sér út í hverja minnstu hreyfingu."

Athugasemdir
banner