23.01.12 - 07:00
Magnús Már Einarsson
Andri Hjörvar í Þór (Staðfest)
Yngri bróðir hans framlengir

Atli Jens (til vinstri) og Andri Hjörvar (til hægri) við undirskriftina í gær.

Mynd: Heimasíða Þórs

Þór hefur fengið varnarmanninn Andra Hjörvar Albertsson til liðs við sig frá Fjarðabyggð en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í gær.
Þessi 31 árs gamli leikmaður er uppalinn Þórsari en hann hefur leikið með Fjarðabyggð undanfarin fjögur ár og verið í lykilhlutverki. Andri Hjörvar lék þar áður með Grindavík í tvö ár en hann lék síðast með Þór árið 2003.
,,Ég er mjög ánægður með að vera aftur kominn heim í þorpið og fá loksins að spila aftur með Þór,\" sagði Andri Hjörvar í viðtali á heimasíðu Þórs.
Atli Jens Albertsson yngri bróðir Andra skrifaði einnig undir nýjan tveggja ára samning við Þór í gær.
Atli leikur líkt og Andri í hjarta varnarinnar en þessi 25 ára gamli leikmaður spilaði átta leiki í Pepsi-deildinni í fyrra.
,,Hann getur klárlega kennt mér eitthvað. Hann er með meiri reynslu á þessu sviði og vonandi kennir hann mér eitthvað, þá kenni ég honum eitthvað á móti,\" sagði Atli í viðtali við heimasíðu Þórs en hér að neðan má sjá viðtöl við þá bræður eftir undirskriftina í gær.

Heimild: Heimasíða Þórs