23.01.12 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Nathan Delfouneso til Leicester (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leicester City hefur fengið framherjann Nathan Delfouneso á láni frá Aston Villa en samningurinn gildir í einn mánuð.
Delfouneso er uppalinn hjá Aston Villa en hefur ekki ennþá náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.
Á síðasta tímabili fór hinn tvítugi Delfouneso til Burnley á láni síðari hluta tímabils.
Delfouneso er í U21 árs landsliði Englendinga en hann skoraði í vináttuleik gegn Íslendingum í fyrra og kom einnig við sögu í leik liðanna í undankeppni EM á Laugardalsvelli síðastliðið haust.
Delfouneso er annar leikmaðurinn sem Leicester fær í mánuðinum en Danny Drinkwater kom til félagsins frá Manchester United fyrir helgi og báðir þessir leikmenn gætu leikið sinn fyrsta leik gegn Southampton í kvöld.

Heimild: BBC