Fotbolti.net
23.01.12 - 21:35
Magnús Már Einarsson

Sveinbjörn Jónasson í Fram (Staðfest)

Sveinbjörn Jónasson í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Sveinbjörn Jónasson hefur gengið til liðs við Fram en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið í dag. Sveinbjörn var laus undan samningi hjá Þrótti en hann hafði æft þó æft og spilað með liðinu í vetur. Nú er hins vegar ljóst að hann mun leika með Fram í Pepsi-deildinni næsta sumar.
,,Knattspyrnudeild FRAM er mjög ánægð með að hafa náð samkomulagi við Sveinbjörn og býður hann hjartanlega velkomin í Safamýrina,\" segir á heimasíðu Fram.

Sveinbjörn var sjóðheitur með Þrótti í 1. deildinni síðasta sumar og endaði sem markakóngur deildarinnar með 19 mörk í 22 leikjum en hann var að auki í liði ársins.

Þá skoraði Sveinbjörn einnig þrennu þegar Þróttarar unnu Framara í 16-liða úrslitum Valitor-bikarsins síðastliðið sumar.

Þessi 25 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá Huginn á Seyðisfirði en hann hefur einnig leikið með Fjarðabyggð og Grindavík hér á landi.

Sveinbjörn mun mæta á sína fyrstu æfingu með meistaraflokki á morgun og hitta þar fyrir nýju samherja sína.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.