Fotbolti.net
23.03.24 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Robertson reiður: Hefði getað endað 6-0

Robertson reiður: Hefði getað endað 6-0
Canon

Mynd: EPA

Andy Robertson fyrirliði skoska landsliðsins var allt annað en sáttur eftir 4-0 tap liðsins gegn Hollandi í æfingaleik á Johan Cruyff Arena í Amsterdam í gær.

Liðið hefur ekki unnið í síðustu sex leikjum og hefur fengið á sig átján mörk.

„Ég er reiður og svekktur. Við getum ekki mætt stóru liðunum á útivelli og spilað svona. Við vorum galopnir í lokin, sú staðreynd að við löbbuðum af velli í stöðunni 4-0 er ótrúlegt. Þetta er ómögulegt og þetta þarf að fara yfir," sagði Robertson.

„Við getum ekki haldið þessu áfram. Í síðustu leikjum höfum við fengið á okkur helling af mörkum. Við höfum verið slakir í síðustu sex leikjum. Þetta hefði getað endað 6-0. Við þurfum að fara að vinna aftur."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.