Fotbolti.net
23.06.10 - 17:10
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Storari til Juventus - Amelia til AC Milan (Staðfest)

Marco Amelia.

Marco Amelia.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur selt markvörðinn Marco Storari til Juventus og fengið Marco Amelia á láni frá Genoa í hans stað.
Brasilíski markvörðurinn Dida er á förum frá AC Milan en Christian Abbiati verður væntanlega aðalmarkvörður liðsins á næsta tímabili eftir að hafa jafnað sig af alvarlegum hnémeiðslum.

AC Milan hefur núna fengið Amelia til að berjast við Abbiati um markvarðarstöðuna.

Storari er hins vegar farinn til Juventus þar sem hann skrifaði undir þriggja ára samning.

Storari, sem var á láni hjá Sampdoria á síðustu leiktíð, verður varamaður fyrir Gianluigi Buffon hjá Juventus.

Þó er möguleiki á að Storari fái að hefja næsta tímabil í byrjunarliðinu ef Buffon þarf að fara í aðgerð vegna bakmeiðsla eins og möguleiki er á.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.