Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterkasta lið 10. umferðar - Óvæntur sigur Vals
Birta og Samantha eru í liði umferðarinnar.
Birta og Samantha eru í liði umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur vann óvæntan sigur í Kaplakrika.
Valur vann óvæntan sigur í Kaplakrika.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Genevieve í marki Tindastóls varði víti.
Genevieve í marki Tindastóls varði víti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru núna tíu umferðir búnar af Bestu deild kvenna en framundan er löng EM-pása.

Valur fer inn í EM-pásuna með góðan sigur á bakinu þar sem þær lönduðu óvæntum sigri í Kaplakrika gegn FH. Þetta hefði ekki verið sagt fyrir mót en svona er þetta núna þar sem Valur hefur verið í miklum erfiðleikum á tímabilinu.

Kristján Guðmundsson og Matthías Guðmundsson, þjálfarar Vals, eru þjálfarar umferðarinnar en þeir þurftu nauðsynlega að ná í þessi þrjú stig. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir var hetja Vals en hin 17 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir lék vel fyrir FH í leiknum.



Thelma Karen er í fjórða sinn í liði umferðarinnar í sumar en Birta Georgsdóttir er í því í fimmta sinn. Hún hefur leikið frábærlega að undanförnu og átti góðan leik fyrir Blika í sigri gegn Stjörnunni. Samantha Smith lék einnig vel í þeim leik.

Þór/KA vann sterkan sigur gegn Víkingum og þar voru Sonja Björg Sigurðardóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir og Amalía Árnadóttir sterkar.

Þróttur komst aftur á sigurbraut gegn Fram og fer með jafnmörg stig og Breiðablik á toppi deildarinnar inn í pásuna. Jelena Tinna Kujundzic og Þórdís Elva Ágústsdóttir voru bestar í þeim leik.

Tindastóll tók þá kærkominn sigur gegn FHL, sem er enn án stiga. Birgitta Rún Finnbogadóttir var best á vellinum og Genevieve Crenshaw varði víti.

Næsta umferð í Bestu deild kvenna verður seint í júlí.

Fyrri lið umferðarinnar
Uppbótartíminn - Núna fer hausinn á EM
Athugasemdir
banner