23.07.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Einar Andri í Árborg (Staðfest)

Mynd: Heimasíða KR

Mynd: Heimasíða KR
Árborg úr þriðju deildinni hefur fengið markvörðinn Einar Andra Einarsson að láni frá KR.
Einar Andri er 20 ára gamall og hefur verið þriðji markvörður KR-inga í sumar. Hann hefur tvisvar verið í leikmannahópi KR í Pepsi-deildinni á þessu keppnistímabili, auk þess sem hann lék með liðinu í deildarbikarnum í vor.
Hann gekk upp úr 2. flokki sl. haust og var hluti af Íslandsmeistaraliði KR í 2. flokki á síðasta keppnistímabili.
Árborg hefur fengið fleiri leikmenn frá því félagaskiptaglugginn opnaði en Brynjar Þór Elvarsson og Hartmann Antonsson léku með liðinu gegn Birninum í fyrsta skipti í gær. Báðir eru þeir uppaldir Selfyssingar en Brynjar kom frá KFR og Hartmann frá Hamri.
Árborg er í góðri stöðu á toppi A-riðils í þriðju deildinni en Einar Andri er nú þegar kominn með leikheimild með liðinu og getur því leikið gegn Markaregni í næstu viku.

Heimild: Sunnlenska.is