23.07.10 - 10:08
Alexander Freyr Tamimi
Titus Bramble í Sunderland (Staðfest)

Titus Bramble er hér í baráttunni við Didier Drogba leikmann Chelsea.

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Sunderland hefur gengið frá þriggja ára samingi við varnarmanninn Titus Bramble en hann kemur til liðsins frá erkifjendunum í Wigan.
Bramble mun hjá Sunderland hitta sinn gamla knattspyrnustjóra hjá Wigan, Steve Bruce, en hann lék einnig með Newcastle á árum áður.
Bruce telur að Bramble verði mikilvæg viðbót í lið sitt á komandi tímabili og er hann hæstánægður með kaupin.
„Titus var einfaldlega frábær þegar ég var hjá Wigan og hann hefur þroskast í mjög, mjög góðan leikmann. Ég þurfti ekkert að hugsa mig um þegar ég vissi af möguleikanum um að fá hann til Sunderland,\" sagði Bruce.
„Hann var án alls vafa rétti leikmaðurinn á réttu verði. Félagið gerði frábær kaup.\"

Heimild: Sky