23.08.09 - 20:29
Hafliði Breiðfjörð
Man City og Everton ná samkomulagi um Lescott (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City staðfesti á vef sínum í kvöld að félagið hafi náð samkomulagi við Everton um kaup á varnarmanninum Joleon Lescott.
Þar kemur einnig fram að leikmaðurinn muni ganga til liðs við félagið ef hann kemst í gegnum læknisskoðun og nær samningum um kaup og kjör í samningi sínum.
Lescott hefur verið orðaður við Manchester City í allt sumar en áður hafði Everton hafnað tveimur tilboðum í leikmanninn.
Hann var tekinn út úr hópnum fyrir Evrópuleik liðsins fyrir helgi og var ekki heldur með gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Nú er ljóst að hann er að yfirgefa Everton og mun leika í búningi Manchester City á leiktíðinni sem var að hefjast.

Heimild: Vefur Man City