Fotbolti.net
23.09.11 - 11:00
Mist Rúnarsdóttir

Sólveig Þórarinsdóttir í FH og tvær framlengja (Staðfest)

Sólveig Þórarinsdóttir leikur með FH næsta sumar

Sólveig Þórarinsdóttir leikur með FH næsta sumar

Canon

Mynd: Óðinn Þórarinsson

Kvennaboltinn
Sólveig Þórarinsdóttir er gengin til liðs við FH frá HK/Víkingi en þetta kemur fram í tilkynningu frá FH. Þá hafa þær Guðrún Bentína Frímannsdóttir og Margrét Sif Magnúsdóttir framlengt samninga sína við félagið og félagið ætlar að styrkja hópinn enn frekar.
Sólveig er uppalin hjá KR en hefur leikið með HK/Víkingi undanfarin tvö ár. Hún hafði lagt skónna á hilluna vegna slæmra meiðsla árið 2004 en sneri aftur í boltann og lék með HK/Víkingi sumurin 2010 og 2011.

Hún hefur verið lykilleikmaður í liði HK/Víkings en hefur nú ákveðið að reyna fyrir sér í efstu deild að nýju. Hún lék á sínum tíma 43 leiki í efstu deild með KR og 14 yngri landsleiki.

Sólveig hefur einnig leikið með A-landsliðinu en hún kom við sögu í vináttuleik Íslands og Skotlands vorið 2004, skömmu áður en hún varð fyrir meiðslunum. Þá lék hún með öllum yngri landsliðum Íslands.

Fram kemur á heimasíðu HK að Sólveig muni áfram gegna starfi sjúkraþjálfara hjá HK/Víking auk þess sem hún verði ráðgjafi við uppbyggingu styrktarþjálfunar hjá liðinu.

Guðrún Bentína Frímannsdóttir hefur gert nýjan samning við FH. Bentína gekk til liðs við FH fyrir síðasta tímabil frá Grindavík. Bentína hefur leikið 51 meistaraflokksleik auk þess að hafa spilað með U17 landsliðinu.

Margrét Sif Magnúsdóttir hefur gert nýjan samning við FH. Margrét gekk til liðs við FH fyrir síðasta tímabil frá Haukum. Margrét er enn á 2. flokks aldri en tók samt þátt í 16 leikjum með meistaraflokki FH á nýliðnu tímabili. Áður hafði Margrét spilað 32 meistaraflokksleiki með Haukum.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.