Fotbolti.net
23.09.11 - 15:50
Magnús Már Einarsson

Marcus Hahnemann til Everton (Staðfest)

Marcus Hahnemann til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur samið við bandaríska markvörðinn reynda Marcus Hahnemann.

Þessi 39 ára gamli leikmaður hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Wolves í sumar.

Hahnemann hefur nú gert samning við Everton en samningurinn gildir þar til í janúar.
Hjá Everton mun Hahnemann berjast við Tim Howard og Jan Mucha um stöðu í liðinu.

,,Við höfum einungis tvo (markverði) svo við töldum þörf á að fá einhvern. Hann er reyndur og gefur okkur aukið öryggi,\" sagði David Moyes stjóri Everton.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.