Fotbolti.net
23.09.11 - 19:12
Elvar Geir Magnússon

Hlynur Svan tekur við kvennaliði Breiðabliks (Staðfest)

Hlynur Svan tekur við kvennaliði Breiðabliks (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Hlynur Svan Eiríksson var kynntur fyrir leikmönnum kvennaliðs Breiðabliks nú í kvöld. Tekur hann við þjálfun liðsins af Ólafi Brynjólfssyni.
Fyrir viku síðan var tilkynnt að Hlynur myndi láta af störfum sem þjálfari Þórs/KA og var þá sagt á heimasíðu Akureyrarliðsins að hann væri að fara í Breiðablik. Meistaraflokksráð Blika var fljótt að þagga þær fréttir niður.

Nú er þó ljóst að Hlynur mun taka við stjórnartaumunum hjá Breiðabliki sem hafnaði í sjötta sæti Pepsi-deildar kvenna í sumar. Sú niðurstaða var vonbrigði í Kópavoginum.

Þór/KA hafnaði í fjórða sæti í sumar en Hlynur tók við þjálfun liðsins um mitt sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.