Fotbolti.net
23.11.11 - 12:48
Magnús Már Einarsson

Finnur Ólafsson í Fylki (Staðfest)

Finnur Ólafsson í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Einaras

Fylkir hefur keypt miðjumanninn Finn Ólasson frá ÍBV en leikmaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við Árbæjarliðið í hádeginu í dag.
Finnur átti eitt ár eftir af samningi sínum við Eyjamenn en Fylkismenn gerðu tilboð í hann í síðustu viku og hafa nú gengið frá samningum við hann.

Hinn 27 ára gamli Finnur er uppalinn hjá HK en hann gekk til liðs við ÍBV fyrir tveimur árum.

Finnur hefur leikið vel með Eyjamönnum undanfarin tvö tímabil en í sumar spilaði hann sautján leiki í Pepsi-deildinni. Eftir tímabilið var hann valinn í lið ársins í vali Fótbolta.net.

Þónokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Fylkis frá því að Pepsi-deildin kláraðist í haust en Finnur er fjórði leikmaðurinn sem kemur til félagsins í haust.

Árni Freyr Guðnason, Björgólfur Takefusa og Magnús Þórir Matthíasson eru einnig allir komnir í Árbæinn en Albert Brynjar Ingason, Fjalar Þorgeirsson, Baldur Bett og Valur Fannar Gíslason er horfnir á braut auk þess sem Gylfi Einarsson hefur lagt skóna á hilluna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.