23.11.11 - 22:10
Hörður Snævar Jónsson
Haukur, Haraldur og Hafsteinn í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Hafsteinn, Haraldur og Haukur ásamt Jörundi Áka Sveinssyni sem tók við þjálfun BÍ/Bolungarvíkur í haust.

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

BÍ/Bolungarvík hefur gengið frá samningum við Hauk Ólafsson, Hafstein Rúnar Helgason og Harald Hróðmarsson. Þetta staðfesti Samúel Samúelsson formaður BÍ/Bolungarvíkur á Twitter síðu sinni í kvöld. Allir semja þeir til tveggja ára.
Haukur Ólafsson kemur frá ÍR þar sem hann hefur leikið frá 2008 en hann skoraði fimm mörk í 17 leikjum í 1. deldinni í sumar.
Hafsteinn Rúnar Helgason er vinstri bakvörður sem kemur frá Stjörnunni. Hann hefur verið í Garðabænum síðustu tvö sumur en spilaði aðeins níu leiki í sumar.
Haraldur Hróðmarsson kemur frá Hamri í 2. deildinni þar sem hann var funheitur í sumar og skoraði 15 mörk í 19 leikjum.
Þetta eru fyrstu leikmennirnir sem Jörundur Áki Sveinsson nýr þjálfari BÍ/Bolungarvíkur krækir í en hann tók við af Guðjóni Þórðarsyni í haust.