Fotbolti.net
24.01.12 - 18:20
Elvar Geir Magnússon

Taye Taiwo spilar með QPR út tímabilið (Staðfest)

Taye Taiwo spilar með QPR út tímabilið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur fengið vinstri bakvörðinn Taye Taiwo lánaðan frá AC Milan út leiktímabilið. Þessi 26 ára leikmaður var einnig orðaður við Arsenal.
Taiwo er nígerískur landsliðsmaður sem var keyptur til Milan frá Marseille í sumar en hefur aðeins spilað fjóra leiki í byrjunarliði hjá Ítalíumeisturunum.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Mark Hughes fær til QPR síðan hann tók við knattspyrnustjórn hjá félaginu.

„Ég veit ekki hvort það séu einhverjir atvinnumenn sem sætta sig við það að fá borgað mánaðarlega fyrir að sitja á bekknum. Ég er allavega ekki í þeim flokki,\" segir Taiwo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.