24.01.12 - 17:50
Hafliði Breiðfjörð
Haraldur Björnsson í Sarpsborg (Staðfest)

Haraldur Björnsson er genginn til liðs við norska félagið Sarpsborg.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Markvörðurinn Haraldur Björnsson er genginn til liðs við norska félagið Sarpsborg og skrifaði í dag undir samning við félagið sem gildir út árið 2014.
Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá norska félaginu í dag en Haraldur kemur frá Val sem hann hefur spilað með undanfarin ár.
,,Björnsson er kominn og það er búið að skrifa undir pappríana,\" sagði Björn Inge Nilsen íþróttastjóri félagsins á vef Sarpsburg í dag.
Haraldur sem er 23 ára gamall hafði æft með norska liðinu í nóvember ásamt tveimur öðrum íslenskum leikmönnum, Alberti Brynjari Ingasyni úr FH og Kjartani Ágúst Breiðdal úr Fylki.
Hann var markvörður U21 árs landsliðs Íslands á Evrópumótinu í Danmörku síðasta sumar og var svo kallaður inn í A-landsliðshópinn í haust.
Hann var samningsbundinn Val til næstu tveggja ára en Sarpsborg samdi við Val um kaupverð og nú er þessi 23 ára gamli markvörður farinn til þeirra. Haraldur er uppalinn í Val en var í nokkur á hjá Hearts í Skotlandi.
Valur er þó áfram með tvo markverði, þá Sindra Snær Jensson sem var varamarkvörður í fyrrasumar og Ásgeir Þór Magnússon sem var lánaður til Hattar í 2. deildinni og hefur verið í U21 árs landsliðinu.

Heimild: Vefur Sarpsborg