24.01.12 - 20:41
Alexander Freyr Tamimi
Luis Boa Morte til Orlando Pirates (Staðfest)

Boa Morte átti fín ár á Englandi.

Mynd: Getty Images

Boa Morte átti fín ár á Englandi.

Mynd: Getty Images
Portúgalinn Luis Boa Morte er genginn til liðs við ríkjandi Suður-Afríkumeistarana í Orlando Pirates, en þetta staðfesti talsmaður félagsins.
Þessi 34 ára leikmaður lék síðast með Larissa í Grikklandi, en hann hefur meðal annars leikið með Arsenal, Fulham og West Ham á ferli sínum á Englandi.
Hann hefur nú skrifað undir 18 mánaða samning við Sjóræningjana, en hann vonast til að hjálpa þeim í baráttu sinni í afrísku meistaradeildinni.
Boa Morte á 28 landsleiki að baki með Portúgal og hefur skorað í þeim eitt mark, í 5-1 sigri gegn Angóla.

Heimild: FIFA