Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. janúar 2022 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Afríkukeppnin í dag - Möguleiki á niðurlægingu
Kamerún mætir vængbrotnu liði Kómoreyja.
Kamerún mætir vængbrotnu liði Kómoreyja.
Mynd: Getty Images
Í dag halda 16-liða úrslitin í Afríkumótinu áfram að rúlla og eru tveir leikir á dagskrá, líkt og í gær.

Gestgjafar Kamerún spila við Kómoreyjar, sem hafa komið mjög á óvart á mótinu til þessa. Eins og við fjölluðum um á laugardag, þá eru Kómoreyjar í miklum vandræðum fyrir leikinn vegna Covid smita. Þeir þurfa að vera með útileikmann í markinu til að mynda og sigurlíkur þeirra ekki miklar.

Sá leikur hefst 19:00, en áður en hann hefst mætast Gínea og Gambía í hinum leik dagsins.

Það eru sæti í átta-liða úrslitunum í boði. Leikirnir eru sýndir á Viaplay.

mánudagur 24. janúar
16:00 Gínea - Gambía
19:00 Kamerún - Kómoreyjar
Athugasemdir
banner
banner
banner