Fotbolti.net
24.07.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

James McArthur til Wigan (Staðfest)

Roberto Martinez stjóri Wigan.

Roberto Martinez stjóri Wigan.

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur keypt miðjumanninn James McArthur frá skoska félaginu Hamilton Academical.

Þessi 22 ára leikmaður er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Wigan.

Talið er að kaupverðið sé í kringum 400 þúsund pund en hjá Wigan hittir McArthur fyrir James McCarthy fyrrum félaga sinn hjá Hamilton sem Wigan festi kaup á síðastliðið sumar á 1,2 milljónir punda.
,,James er mjög spennandi leikmaður,\" sagði Roberto Martinez stjóri Wigan.

,,Við erum að byggja upp hóp hér og ég tel að James sé frábær viðbót á miðjuna.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.