24.07.10 - 16:13
Einar Sigurðsson
Kolarov til Manchester City (Staðfest)

Aleksandar Kolarov.

Mynd: Getty Images

Aleksandar Kolarov.

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur staðfest kaupin á serbneska vinstri bakverðinum Aleksandar Kolarov en hann er keyptur á 19 milljónir punda.
Kolarov hefur verið sterklega orðaður við félagið í margar vikur en nú hefur verið staðfest að leikmaðurinn sé kominn með vinnuleyfi og að hann hafi staðist læknisskoðun. Hann hefur skrifað undir 5 ára samning hjá félaginu.
Juventus reyndi að krækja í leikmanninn en Roberto Mancini náði að lokum að klófesta hann sem var áður hjá Lazio og OFK Belgrade í heimalandinu.
,,Ég sá fyrst Kolarov spila í sínum fyrsta leik fyrir Lazio árið 2007,\'\' sagði Mancini á heimasíðu City fyrir kaupin. ,,Hann var yfirvegaður á boltanum og með frábærar fyrirgjafir með vinstri fæti og tækni hans var mjög góð.\'\'
Mancini segir samt sem áður að koma Kolarov geri það ekki að verkum að dagar Wayne Bridge séu taldir hjá félaginu sem spilar sömu stöðu og Serbinn. Mancini sagði einfaldlega: ,,Ég vil tvo toppklassa leikmenn í hverja stöðu.\'\'