24.08.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Nicolas Burdisso til Roma á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roma hefur samið um að fá varnarmanninn Nicolas Burdisso á láni frá Inter.
Burdisso hefur ekki átt fast sæti í liði Inter og því stökk hann á tilboð Roma.
Jose Mourinho, þjálfari Inter, er þessa dagana að minnka leikmannahópinn en hins vegar segir hann ólíklegt að Patrick Vieira fari sömu leið og Burdisso þrátt fyrir að hann hafi verið orðaður við nokkur félög.
,,Hann bað um að fá að æfa og sýna sig og hann hefur ekki misst af einni mínútu,\" sagði Mourinho.

Heimild: Reuters