24.08.09 - 14:57
Hörður Snævar Jónsson
Sylvinho til Manchester City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Manchester City hefur gert eins árs samning við vinstri bakvörðinn Sylvinho en þessi 35 ára gamli bakvörður var án félags.
Samningur Sylvinho við Barcelona rann út eftir síðustu leiktíð og hefur hann verið að leita sér að félagi síðan.
Sylvinho er ekki ókunnugur ensku úrvalsdeildinni því hann lék með Arsenal frá árinu 1999 til 2001.
Sylvinho mun vera í treyju númer 16 en í þeirri treyju lék Kasper Schmeichel áður.
,,Sylvinho hefur mikla reynslu á hæsta stigi fótboltans eftir að hafa spilað í Evrópu og með stærstu félögum í Evrópu,\" sagði Mark Hughes stjóri City en Sylvinho mun berjast við Wayne Bridge um stöðu í liðinnu.
,,Þegar sá möguleiki kom upp að fá hann til Manchester City á frjálsri sölu þá sá ég möguleika á því að gera frábær viðskipti.\"

Heimild: Manchester City