Fotbolti.net
24.08.09 - 18:16
Magnús Már Einarsson

Jonathan Greening til Fulham (Staðfest)

Jonathan Greening til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur fengið miðjumanninn Jonathan Greening á láni frá WBA en gengið var frá öllum lausum endum í dag.
Þessi þrítugi leikmaður hefur verið lengi á óskalista Fulham en hann óskaði eftir sölu í júlí.

WBA hafnaði þremur tilboðum í Greening áður en félagið leyfði honum að fara til Fulham á láni með möguleika á kaupum næsta sumar.

,,Jonno hefur verið öflugur leikmaður fyrir þetta félag og eins og þið vitið þá höum við reynt allt til að halda honum,\" sagði Roberto Di Matteo stjóri WBA.

,,Að lokum töldum við tilboðið sem var á borðinu vera mjög gott fyrir okkur og við ákváðum að leyfa honum að fara. Við óskum honum góðs gengis.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.