24.11.11 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Mikael Lustig til Glasgow Celtic í janúar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Glasgow Celtic í Skotlandi hefur samið við sænska hægri bakvörðinn Mikael Lustig. Þessi 24 ára leikmaður hefur verið hjá Rosenborg síðan 2008 en gengur til liðs við Celtic í janúar á þriggja og hálfs árs samning.
„Þetta er mjög spennandi verkefni fyrir mig. Ég veit mikið um Celtic og hve stórt þetta félag er,\" segir Lustig sem hefur leikið 23 landsleiki fyrir Svíþjóð.
Þessi félagaskipti vekja athygli vegna þess að Celtic hefur þegar tvo sterka hægri bakverði i sínum röðum, Skotann Mark Wilson og Suður-Kóreumanninn Cha Du-Ri.
„Mikael getur líka spilað í miðri vörninni og við fögnum því að fá hann til liðsins,\" segir Neil Lennon, stjóri Celtic.
Celtic er í öðru sæti skosku úrvalsdeildarinnar, tíu stigum á eftir toppliði Glasgow Rangers.