24.11.11 - 11:20
Magnús Már Einarsson
Viggó Kristjánsson í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Breiðablik hefur fengið Viggó Kristjánsson til liðs við sig frá Gróttu en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í gær.
Viggó, sem getur leikið bæði á miðjunni og í fremstu víglínu, hefur æft með Blikum í haust.

,,Ég er mjög ánægður með þetta. Ég tel að þetta sé gott skref fyrir mig,\" sagði Viggó við Fótbolta.net í dag.
Viggó er 18 ára gamall en hann á þrátt fyrir það þrjú ár að baki með meistaraflokki Gróttu. Í sumar skoraði hann eitt mark í tuttugu leikjum í fyrstu deildinni.
Viggó er fyrsti leikmaðurinn sem Breiðablik fær í sínar raðir síðan keppni í Pepsi-deildinni lauk.