Fotbolti.net
24.11.11 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Maik Taylor til Leeds (Staðfest)

Maik Taylor til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds hefur gert stuttan samning við markvörðinn Maik Taylor en samningurinn gildir fram í janúar.
Þessi fertugi leikmaður hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Birmingham maí en hann hefur þó leikið landsleiki með Norður-Írum síðan þá.

Taylor á 578 leiki að baki á ferli sínum en hann hefur æft með Leeds undanfarnar tvær vikur. Eftir að hafa varið víti í æfingaleik gegn Chelsea fékk hann síðan samning hjá félaginu.

Mikil vandræði hafa verið með markvarðarstöðu Leeds undanfarið en aðalmarkvörðurinn Andy Lonergan er frá keppni vegna meiðsla.

Paul Rachubka var tekinn af velli í hálfleik eftir að hafa gefið þrjú mörk í 5-0 tapi gegn Blackpool í síðasta mánuði en síðan þá hefur lánsmaðurinn Alex McCarthy staðið á milli stanganna.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.