24.11.11 - 20:15
Magnús Már Einarsson
James Beattie til Sheffield United (Staðfest)

Beattie hefur verið í balsi undanfarin ár.

Mynd: Getty Images

James Beattie hefur gengið til liðs við Sheffield United í ensku C-deildinni en samningurinn gildir fram í miðjan janúar.
Beattie þekkir til hjá Sheffield United því hann skoraði 34 mörk í 65 leikjum með liðinu frá 2007-2009.
Beattie, sem skoraði síðast mark í leik árið 2009, yfirgaf herbúðir Rangers í Skotlandi eftir síðasta tímabil en hann var hluta tímabilsins á láni hjá Blackpool.
Þessi 33 ára gamli leikmaður gekk til liðs við Everton frá Southampton á fimm milljónir punda árið 2005 en síðan þá hefur ferillinn legið niður á við en nú mun hann leika í þriðju efstu deild.
Beattie hefur einnig leikið með Blackburn Rovers og Stoke City á ferli sínum.

Heimild: BBC