Fotbolti.net
24.11.11 - 22:27
Hafliði Breiðfjörð

Christian Mouritsen farinn frá Val til HB (Staðfest)

Christian Mouritsen hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Val.

Christian Mouritsen hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Færeyski sóknarmaðurinn Christian Mouritsen er hættur í Val og genginn til liðs við HB í heimalandi sínu, Færeyjum.
Þetta var staðfest á vefnum Dimmalæting í Færeyjum fyrr í dag en Mouritsen er þar með að snúa aftur heim til uppeldisfélags síns.

Mouritsen mun hafa skrifað undir samning við HB í gær en auk þess félags hefur hann einnig spilað áður með B36 í Færeyjum og var á mála hjá Manchester City á Englandi um tíma.

Hann er 23 ára gamall og spilaði í heildina 21 leik fyrir Val í deild og bikar í sumar og skoraði í þeim tvö mörk.

Hann er einn þriggja Færeyinga sem léku með Val í sumar, hinir eru Jónas Tór Næs og Pól Jóhannus Justinisusen. Ekki er enn ljóst hvort þeir tveir munu leika áfram með Val á næstu leiktíð.

Valur er að fá til liðs við sig framherjann Atla Heimisson frá Asker í Noregi og var áður búið að fá Brynjar Kristmundsson frá Víkingi Ólafsvík, Hafstein Briem frá HK og Hilmar Rafn Emilsson frá Haukum.

Þeir hafa misst Guðmund Stein Hafsteinsson í Víking Ólafsvík, Jón Vilhelm Ákason í ÍA og Sigurbjörn Hreiðarsson í Hauka.

Heimild: Dimma.fo

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.