Fotbolti.net
25.01.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Jonny Howson til Norwich (Staðfest)

Jonny Howson til Norwich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Norwich hefur gengið frá kaupum á Jonny Howson fyrirliða Leeds United en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 23 ára gamli leikmaður er búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir þriggja og hálfs árs samning.

,,Hann getur komið með mörk á miðjunni en það er eitthvað sem ég tel okkur vanta,\" sagði Paul Lambert stjóri Norwich.

,,Hann verður betri leikmaður á því að spila í sterkari deild. Ef hann gerir það verður hann frábær leikmaður fyrir okkur.\"

Howson hefur leikið tæplega 200 leiki með Leeds en samningur hans við félagið átti að renna út í sumar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.