Fotbolti.net
25.01.12 - 08:05
Alexander Freyr Tamimi
Ítalska deildin

Amauri til Fiorentina (Staðfest)

Amauri í treyju Palermo, þar sem hann skapaði sér nafn á Ítalíu.

Amauri í treyju Palermo, þar sem hann skapaði sér nafn á Ítalíu.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski framherjinn Amauri er genginn til liðs við Fiorentina frá Juventus eftir að hafa lent úti í kuldanum hjá síðarnefnda félaginu.
Amauri hefur ekki fengið að spila einn einasta leik fyrir Juventus á tímabilinu og staðfesti Fiorentina í gærkvöldi að hann væri genginn til liðs við þá. Hann stóðst læknisskoðun fyrr í gær.

Juventus keypti Amauri á tæpar 20 milljónir punda frá Palermo í maí 2008 en hann hefur aldrei náð að stimpla sig inn hjá ítalska stórveldinu. Þjálfarinn Antonio Conte vill ekkert með hann hafa og mun hann vonast til að geta endurupplifað góðu tímana á Ítalíu í treyju Fiorentina.

Heimild: Sports Illustrated

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.