Fotbolti.net
25.01.12 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Martin Caceres til Juventus (Staðfest)

Martin Caceres til Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Juventus hefur fengið úrúgvæska varnarmanninn Martin Caceres á láni frá Sevilla.

Lánssamningurinn gildir út tímabilið en Juventus borgar Sevilla 1,5 milljónir evra eða 1,25 milljónir punda fyrir samninginn.
Juventus á síðan möguleika á að kaupa leikmanninn á 8 milljónir evra eða 6,5 milljónir punda eftir tímabilið.

Caceres þekkir til hjá Juventus því hann var í láni hjá félaginu frá Barcelona tímabilið 2009/2010.

Meiðsli settu strik í reikninginn síðast þegar Caceres var hjá Juventus en hann hefur hins vegar staðið sig vel með Sevilla síðan hann kom til félagsins sumarið 2010.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.