Stór nöfn í sögu Barcelona voru samankomin á veitingastað í gærkvöldi þar sem Xavi Hernandez, núverandi þjálfari Börsunga, hélt upp á 42 ára afmæli sitt.
Hann bauð nánum vinum sínum í fögnuðinn en meðal manna sem voru mættir var Lionel Messi sem flaug frá París til að vera viðstaddur.
Sergio Busquets og Jordi Alba voru einnig mættir en þessir fjórir menn voru liðsfélagar hjá Barcelona. Busquets og Alba spila nú undir stjórn Xavi.
Messi átti söguleg skipti yfir til Parísar í fyrra og spilar nú fyrir Paris Saint-Germain eftir mikil velgengnisár hjá Barcelona.
Fjölmiðlamenn reyndu að fá einhver orð upp úr Messi þegar hann mætti á veitingastaðinn en Argentínumaðurinn vildi skiljanlega ekkert segja.

Athugasemdir