25.06.10 - 13:47
Magnús Már Einarsson
Michael Ballack til Bayer Leverkusen (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Michael Ballack hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska félagið Bayer Leverkusen.
Þessi 33 ára gamli leikmaður kemur frítt til Leverkusen eftir að samningur hans hjá Chelsea rann út.
Ballack lék í þrjú ár með Bayer Leverkusen á sínum tíma áður en hann gekk í raðir FC Bayen árið 2002.
,,Með félagaskiptum mínum til Bayer Leverkusen er hringnum lokað,\" sagði Ballack eftir að hann skrifaði undir í dag.
,,Ég átti góðan tíma og gekk vel hér. Það hafði mikil áhrif á ákvörðun mína.\"

Heimild: Sky