Fotbolti.net
25.07.10 - 12:57
Jóhann Óli Eiðsson

Guti til Besiktas (Staðfest)

Guti ásamt Zinedine Zidane á góðri stund

Guti ásamt Zinedine Zidane á góðri stund

Canon

Mynd: Getty Images

Það er óhætt að segja að það sé komið að tímamótum hjá Spænska miðjumanninum Guti en hann er á leiðinni til Tyrkneska liðsins Besiktas. Hjá Besiktas hittir hann fyrir fyrrum þjálfara sinn, Bernd Schuster.
Guti, 33 ára, hefur leikið með Real Madrid frá því að hann var níu ára en sinn fyrsta aðalliðsleik lék hann árið 1995.

Á þessum tíma lék hann 542 leiki og skoraði í þeim 77 mörk. Auk þess vann hann fimmtán titla, þar af fimm deildarmeistaratitla og þrjá meistaradeildar.

,,Ég vil þakka öllum fyrir. Ég átti frábæra tíma hjá Real Madrid og það mun alltaf vera mitt lið,\" sagði Guti.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.