Fotbolti.net
25.08.09 - 10:06
Hafliði Breiðfjörð

Diniyar Bilyaletdinov til Everton (Staðfest)

Bilyaletdinov í leik með Rússum gegn Englandi.

Bilyaletdinov í leik með Rússum gegn Englandi.

Canon

Mynd: Getty Images

Rússneski miðjumaðurinn Diniyar Bilyaletdinov er genginn í raðir Everton frá Lokomotiv Moskvu en kaupverðið var ekki gefið upp.
Bilyaletdinov sem er 24 ára gamall á að baki 28 landsleiki fyrir Rússland. Hann gerði fimm ára samning við Everton.

Hann mun nú snúa aftur til Rússlands þar sem hann gengur frá vegabréfsáritun til að koma til Bretlands.

Hann er ekki löglegur í leikinn gegn Sigma Olomouc í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöldið og verður líklega ekki tilbúinn þegar liðið mætir Wigan heima á sunnudaginn.

Fulltrúar Everton hittu leikmanninn í Hamburg á mánudag en hann má fara til Þýskalands án vegabréfsáritunar.

Hann kemur svo til Englands með rússneska landsliðinu í byrjun september þar sem liðið mætir Wales og mun líklega leika sinn fyrsta Everton leik gegn Fulham 13. september.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.