25.08.09 - 15:52
Magnús Már Einarsson
Sol Campbell til Notts County (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sol Campbell hefur gert fimm ára samning við Notts County sem leikur í fjórðu efstu deild á Englandi.
Campbell var án félags eftir að hafa yfirgefið Portsmouth fyrr í sumar og hann hefur núna ákveðið að leika með Notts næstu árin.
,,Þetta félag hefur mikinn metnað og ég vil vera hluti af þessu,\" sagði Campbell í dag.
,,Það voru tilboð úr úrvalsdeildinni en það hefði einungis verið til styttri tíma. Ég er að hugsa um framtíðina.\"
Campbell lék á sínum tíma 73 landsleiki með Englendingum, meðal annars undir stjórn Sven-Goran Eriksson, en sá síðarnefndi var á dögunum ráðinn yfirmaður fótboltamála hjá Notts.
,,Sven hafði mikil áhrif. Hann er frábær maður. Hann hefur stýrt liðum út um allan heim og hann veit mikið fótbolta.\"
Notts County stefnir á að klifra upp deildirnar í Englandi á næstu árum en liðið hefur mikinn pening til að spila úr.

Heimild: BBC