25.08.09 - 19:48
Hafliði Breiðfjörð
Ármann Smári Björnsson til Hartlepool (Staðfest)

Ármann Smári í búningi Hartlepool.

Mynd: Vefur Hartlepool

Ármann Smári í búningi Hartlepool.

Mynd: Vefur Hartlepool
Ármann Smári Björnsson er genginn til liðs við enska 1. deildarliðið Hartlepool United en þetta var staðfest á vef félagsins í kvöld.
Ármann smári kemur til félagsins frá Brann í Noregi þar sem hann hefur verið undanfarin ár.
Hann kom til Englands í dag og gekkst undir læknisskoðun hjá Hartlepool og skrifaði í kjölfarið undir samning við félagið fyrir leikinn gegn Burnley í Carling Cup.
Ármann Smári er annar leikmaðurinn sem kemur til félagsins frá Noregi í sumar en áður höfðu þeir fengið Jon-Andre Fredriksen.
Ármann Smári er 28 ára gamall og getur bæði spilað sem miðvörður og framherji. Hann á að baki fjóra landsleiki fyrir Ísland og hefur skorað í þeim eitt mark.
Hann fékk treyjunúmerið 26 og verður klár í slaginn fyrir leikinn gegn Norwich City um helgina.

Heimild: Vefur Hartlepool