Fotbolti.net
25.08.09 - 22:55
Hafliði Breiðfjörð

Joleon Lescott til Man City (Staðfest)

Joleon Lescott.

Joleon Lescott.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Joleon Lescott er genginn til liðs við Manchester City frá Everton og mun æfa með nýjum liðsfélögum sínum á morgun. Frá þessu var greint á vef Manchester City í kvöld.
Lescott sem er 27 ára gamall skrifaði undir fimm ára samning við City í kvöld og Mark Hughes knattspyrnustjóri liðsins var hæstánægður.

,,Ég er alveg í skýjunum yfir að fá Joleon til Manchester City,\" sagði hann. ,,Hann er landsliðsmaður Englands sem hefur sannað gæði sín í úrvalsdeildinni meðan hann var hjá Everton.\"

,,Með því að fá Joleon til félagsins finnst mér ég hafa fengið varnarmann í besta gæðaflokki. Hann getur spilað í nokkrum varnarstöðum, og ég er vongóður um að hann hafi mikil áhrif á leik okkar.\"

Heimild: Vefur Man City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.