25.09.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Bob Bradley tekur við landsliði Egyptalands (Staðfest)

Bob Bradley mun þjálfa Egyptaland.

Mynd: Getty Images

Bob Bradley mun þjálfa Egyptaland.

Mynd: Getty Images
Bob Bradley fyrrverandi landsliðsþjálfari Bandaríkjanna hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Egyptalands en hann skrifaði undir samning þessa efnis í gær.
Bradley sem er 53 ára gamall gerði samning um að þjálfa liðið fram yfir Heimsmeistaramótið í Brasilíu árið 2014 en Egyptum hafði nýlega mistekist að komast í lokakeppni Afríkumótsins.
Hann mun fá sem samsvarar 4,4 milljónum króna í mánaðarlaun á meðan samningnum stendur.
,,Ég er stoltur af því að taka við þjálfun Egyptalands,\" sagði Bradley á fréttamannafundi. ,,Ég hlakka til að vinna með leikmönnunum.
Hans fyrsti leikur með liðið verður gegn Brasilíu í vináttuleik í nóvember.

Heimild: AP