25.10.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ragnar Hauksson í KS/Leiftur (Staðfest) - Agnar framlengir

Ragnar og Agnar við undirskift samninganna.

Mynd: KS/Leiftur

Ragnar Hauksson hefur skrifað undir tveggja ára samning við KS/Leiftur en hann verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá félaginu.
Ragnar hætti sem þjálfari hjá KS/Leiftri í sumar og í kjölfarið lék hann með Dalvík/Reyni síðari hluta tímabilsins.

Agnar Þór Sveinsson fyrirliði KS/Leiftur til margra ára skrifaði einnig undir tveggja ára samning við félagið.
KS/Leiftur hefur gengið frá samningum við flesta þá leikmenn sem spiluðu á síðasta keppnistímabili. Samið verður við þá sem eftir eru á næstu dögum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu.
,,Hópurinn fyrir næsta keppnistímabil fer því að verða fullmannaður. Æfingar eru þegar hafnar undir stjórn Lárusar Orra Sigurðssonar. KS og Leiftur munu sameinast í næsta mánuði í eitt félag. Nafnið á félaginu er ekki klárt, en margar góðar hugmyndir liggja á borðinu,\" segir í tilkynningunni.