Fotbolti.net
25.10.10 - 21:27
Magnús Már Einarsson

Gunnar Magnús tekur við Njarðvík (Staðfest)

Bjarni Sæmundsson formaður og Gunnar Magnús handsala samniginn.

Bjarni Sæmundsson formaður og Gunnar Magnús handsala samniginn.

Canon

Mynd: Heimasíða Njarðvíkur

Gunnar Magnús Jónsson var í kvöld ráðinn þjálfari hjá 2.deildarliði Njarðvíkur til næstu tveggja ára.
Gunnar Magnús hefur þjálfað kvennalið Grindavíkur síðustu þrjú tímabil og þar áður var hann yfirþjálfari yngri flokka hjá Keflavík en hann hefur meira og minna verið viðloðandi þjálfun og íþróttakennslu í um 20 ár.

Gunnar er menntaður íþróttafræðingur og starfar í dag sem íþróttakennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hann tekur við liðinu af Helga Bogasyni sem tók aftur við Njarðvík sumarið 2009 eftir að hafa áður stýrt liðinu frá 2002-2007.

,,Ekki er komið í ljós með mannabreytingar í liðinu en þó má alltaf gera ráð fyrir breytingum,\" segir í frétt á heimasíðu Njarðvíkur.

,,Gunnar tekur við af Helga Bogasyni sem hefur náð að klára með okkur ein átta tímabil sem er einstakt hér á landi. Við þökkum Helga kærlega fyrir samstarfið og óskum honum góðs gengis við það sem hann tekur að sér.\"

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.