Fotbolti.net
25.10.10 - 23:51
Hafliði Breiðfjörð

Mist Edvardsdóttir í Val (Staðfest)

Mist ásamt Gunnari Borgþórssyni þjálfara Vals.

Mist ásamt Gunnari Borgþórssyni þjálfara Vals.

Canon

Mynd: Valur

Kvennaboltinn
Valur sendi frá sér tilkynningu nú undir miðnætti þess efnis að Mist Edvarsdóttir sé gengin í raðir félagsins frá KR en Mist hefur spilað ýmist á miðju eða miðri vörn KR undanfarin tvö ár. Hún gerir þriggja ára samning við Val.
Mist er fædd árið 1990 og hefur leikið 44 leiki í efstu deild með KR og Aftureldingu og skorað í þeim 6 mörk. Mist er uppalin í Mosfellsbæ og spilaði með Aftureldingu til ársins 2008 en skipti þá yfir í KR.

Mist hefur leikið 6 leiki með U19 ára landsliði kvenna og 3 leiki með A-landsliðinu á Algarvecup á snemma á þessu ári en hún er fjölhæfur miðju og varnarmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum.

,,Mist er mjög metnaðarfull íþróttakona sem setur markið hátt og verður gríðarlega góður liðsstyrkur fyrir komandi tímabil. Það er ljóst að Valur hefur fengið mjög sterkann leikmann í sínar raðir og bjóðum við hana velkomna í félagið,\" segir í yfirlýsingu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.