Fotbolti.net
25.11.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Alma Rut Garðarsdóttir í KR (Staðfest)

Jón Þór hefur fengið þrjá leikmenn til KR á stuttum tíma.

Jón Þór hefur fengið þrjá leikmenn til KR á stuttum tíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Katla Margrét Aradóttir

Kvennaboltinn
Varnarmaðurinn Alma Rut Garðarsdóttir er gengin í raðir KR frá Grindavík en þetta var staðfest á vef KR í gær.
Alma spilaði ekki með Grindavik síðasta sumar vegna meiðsla en er komin á fullt núna og var ákveðin í að finna sér lið í efstu deild. Hún valdi svo að fara ti KR

Alma hefur spilað 8 landsleiki fyrir U-17 ára landslið Íslands og 4 fyrir U19.

Alma stundar nám í Bandarikjunum og spilar þar með Kennesaw State University í NCAA div 1. Á sínu fyrsta ári var Alma valin í All conference team ástamt freshman team eftir að hafa verið markahæst liðsins.

Hún er þriðji leikmaðurinn sem Jón Þór Brandsson fær til félagsins síðan hann tók við þjálfun liðsins í haust. Áður hafði Anna Garðarsdóttir komið úr Aftureldingu og Emma Higgins úr Grindavík en Jón Þór þjálfaði það lið í sumar.

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.