Fotbolti.net
25.11.11 - 07:00
Elvar Geir Magnússon

Marteinn Urbancic í Hauka (Staðfest)

Marteinn Urbancic í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Einar Sigurðsson

Marteinn Urbancic hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka en hann kemur til félagsins frá Val.

Marteinn var lánaður í raðir Hauka á nýliðnu sumri og spilaði hann þrjá leiki með liðinu í 1. deildinni.
Hann gekk til liðs við Val frá KR í febrúar á þessu ári en á myndinni til hliðar má sjá hann í búningi KR.

Marteinn er 18 ára og er enn löglegur í 2. flokk.

Haukar enduðu í þriðja sæti 1. deildar í sumar en voru þó ekki nálægt því að fara upp. Ólafur Jóhannesson tók við liðinu eftir tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.