Fotbolti.net
26.01.12 - 11:15
Magnús Már Einarsson

Tim Ream til Bolton (Staðfest)

Tim Ream til Bolton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bolton hefur keypt varnarmanninn TIm Ream frá New York Red Bulls en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Þessi 24 ára gamli leikmaður æfði með Bolton á síðasta ári og heillaði Owen Coyle stjóra félagsins.
Ream hefur nú skrifað undir þriggja og hálfs árs samning en hann á að hjálpa til við að fylla skarð Gary Cahill sem fór til Chelsea.

,,Við erum fyrst og fremst ánægðir með að hafa náð að tryggja okkur þjónustu Tim,\" sagði Owen Coyle stjóri Bolton.

,,Hann er bandarískur landsliðsmaður, leikmaður sem hefur orðið betri með hverju árinu og mun halda því áfram.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.